Ljúf og góð tómatabaka
Uppruni
Þessa böku fékk ég um daginn í matarboði. Hún var borin fram sem forréttur – afskaplega ljúf og góð. Þar sem ég var ennþá að hugsa um bökuna nokkrum dögum síðar seildist ég eftir uppskriftinni sem ég fékk senda á frönsku. Þar sem uppskriftin var ekki með nákvæmum mælieiningum var ekkert annað í stöðunni en að prófa sig áfram bæði með hlutföllin og frönskuna. Hér er niðurstaðan.
Hráefni
Verklýsing
- Ofninn hitaður í 210°C
- Smjördeigið tekið úr frysti aðeins áður en það er flatt út. Plöturnar lagðar saman og flattar aðeins saman. Sett í botninn á 24 cm pæformi. Pikkað með gaffli í botninn
- Dijon sinnepi penslað yfir botninn og osti stráð yfir
- Tómatasneiðarnar settar yfir ostinn – þær eiga að þekja vel
- Olíu hellt yfir
- Kryddað með Herbes de Provence sem og salti og pipar
- Bakað í 25 – 30 mínútur. Ef tómatarnir eru orðnir dökkir er gott að setja álpappír yfir








