Kókoshúðaðir ávextir
Hugmyndin
Það er ekki alltaf auðvelt fyrir börn, sem eru að byrja að læra að borða, að ná upp matnum með lófanum eða fingrunum – sérstaklega ef hann er sleipur. Þannig kom hugmyndin að nota kókosmjöl til að auðvelda þeim gripið. Hún kom þegar yngri stelpan mín var 6 mánaða og að byrja að læra að borða. Henni gekk illa að ná taki á banananum þar sem hann skaust bara út úr lófanum. Ég prófaði að velta honum upp úr kókosmjöli og þá gekk henni betur. Þannig komst fæðan loksins í munninn en ekki á gólfið eða í smekkinn.
Forvinna
Gott að láta óþroskaða ávexti standa í vissan tíma við stofuhita og gufusjóða harða áxexti eins og epli og peru.
Hráefni
- Mangó/Appelsína/Vatnsmelóna/Banani/Þroskuð pera/Gufusoðið epli
- Kókosmjöl – helst lífrænt
Verklýsing
- Ávöxturinn þarf að vera á því formi að hann uppfylli kreisti prófið
- Ávöxturinn er skorinn í þunnar þríhyrningslagaðar lengjur (sjá mynd)
- Kókosmjöl sett á flatan disk og ávaxtabitunum velt upp úr því
- Sett fyrir framan barnið á djúpum diski eða í skál og auðvitað þarf alltaf að fylgjast með barninu á meðan það borðar







