Einfalt sufflé með spínati og karrý
Uppruni
Hér kemur einn laufléttur forréttur sem má líka hafa á brönshlaðborði eða bjóða upp á einn og sér ef taka á léttan dag. Það má leika sér með framsetninguna með því að setja blönduna í mismunandi bolla eða í eina stóra skál. Þeir sem eiga Hönnupott geta t.d. sett blönduna í lokið. Frábær tilbreyting sem féll heldur betur í kramið hjá barnabarninu mínu sem er að taka sín fyrstu skref í að kanna matarflóruna.
Hráefni
- Klípa af smjöri – u.þ.b. 15 g
- 100 g ferskt spínat
- olía – til að smyrja bollana/skálina
- 4 egg
- 25 g smjör
- 3 msk hveiti
- 3 dl mjólk
- ½ tsk karrý
- ½ tsk saltflögur
- Nýmalaður pipar
Verklýsing
- Ofninn stilltur á 190°C (blásturstilling)
- Spínat steikt í olíu á pönnu þar til það mýkist – lagt á disk eða á eldhúspappír og vökvinn kreistur úr. Því næst er spínatið saxað niður. Ath. þeir sem vilja hafa stilkana meira steikta geta tekið þá frá og steikt fyrst – eins má líka kreista vökvann laust úr eftir að spínatið hefur verið saxað niður
- Eggjahvítur aðskildar frá rauðum og hvíturnar stífþeyttar
- Smjör brætt í potti og hveiti blandað vel saman við. Mjólk bætt við – lítið í einu og pískað saman. Látið sjóða aðeins – þannig að blandan þykkni. Kryddað með karrý, salti og pipar
- Saxaða spínatinu blandað saman við sósuna. Potturinn tekinn af hellunni og eggjarauðunum hrært saman við. Þeyttu eggjahvítunum blandað varlega saman við með sleikju svo hún verði loftkennd og létt
- Bollarnir smurðir með olíu og blöndunni hellt jafnt í. Gera þarf ráð fyrir að blandan lyftist aðeins við bakstur en mér finnst fallegra þegar suffléið nær aðeins upp úr bollanum
- Bakað í 15 – 30 mínútur (fer eftir því hversu stórar skálarnar eru) – betra að opna ekki ofninn fyrr en suffléið hefur lyft sér og kominn er fallegur brúnleitur litur á það. Þar sem suffléið fellur niður eftir nokkrar mínútur eftir að það kemur úr ofninum er fallegra að bera það fram strax. Bragðið er hins vegar það sama og er mjög gott þó svo að lyftingin hafi gengið tilbaka
















