Einfalt og gott kryddsmjör
Uppruni
Hér kemur ein uppskrift frá Vigfúsi og er hún góð leið til að krydda upp á grillaða silunginn. Punkturinn yfir i – ið er svo að fá sér að auki eina skeið af hoppandi góðri hvítlaukssósu ofan á.
Hráefni
- 100 g smjör
- ¾ – 1 dl soyasósa
- 2 hvítlauksrif – pressuð
Verklýsing
- Smjör brætt í potti og soyasósu hrært saman við
- Pressuðum hvítlauk bætt við og látið malla á meðalhita um stund
Gott með: Grillaðri bleikju eða silungi, hrisgrjónum eða ofnsteiktum sætum kartöflum og hoppandi góðri hvítlaukssósu.






