Home » Ceviche – bragðlaukalostæti

Ceviche – bragðlaukalostæti

Einfalt og gott ceviche

  • Servings: 6 - 7 manns
  • Difficulty: meðal
  • Prenta

Uppruni

Um daginn fékk ég þennan rétt hjá vinkonu minni og tókst að væla út uppskriftina.  Frábært að bjóða upp á hann sem forrétt eða sem smárétt á veisluborðið.  Mér finnst hann léttur og góður sem aðalréttur með nýbökuðu súrdeigsbrauði og góðu íslensku smjöri.   Algjört lostæti fyrir bragðlaukana.

Forvinna

Hægt að útbúa fyrr um daginn – þolir að standa í kæli.

Hráefni

  • 1 kg lúða, smálúða eða þorskhnakki (u.þ.b. 800 g hreinn fiskur)
  • U.þ.b. 12 stk lime (280 – 300 ml limesafi – má setja nokkra ml af sítrónusafa í staðinn)
  • 125 ml græn ólífuolía
  • ¾ dl rauðlaukur – saxaður
  • 10 – 15 litlir tómatar – skornir í bita
  • 1 dl grænar fylltar ólífur – skornar í bita eða sneiðar
  • ¾ dl kapers – skorið gróft
  • ½ – ¾ dl jalapeno – saxað
  • 1½ dl ferskur koríander – saxaður

Dressing

  • 1 tsk rauðvínsedik
  • ¼ dl limesafi 
  • ¾ dl olía
  • ½ tsk saltflögur
  • ½ tsk  pipar
  • 1 msk oreganó
  • 4 dropar rautt tabasco

Verklýsing

  1. Fiskurinn skorinn í fingurþykkar ræmur og svo hver ræma í jafnstóra bita – sett í skál
  2. Limesafa hellt yfir  – látið standa í a.m.k. 2 klukkustundir við stofuhuta – þolir að standa yfir nótt í kæli ef notaður er feitur fiskur eins og smálúðu
  3. Safinn skilinn frá fiskinum – hluti af honum notaður í dressinguna
  4. Dressing útbúin og blandað saman við fiskbitana ásamt afgangi af hráefninu

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*