Brakandi brokkólí í leirpotti

Þessi er frekar góður...

  • Servings: 2 - 4
  • Difficulty: auðvelt
  • Print

Uppruni

Þessi réttur má vera einn og sér eða sem meðlæti. Hann á vel við grillmat og er tilvalinn fyrir þá sem aðhyllast grænmetisfæði eða ketó. Einfaldur, góður og fallegur réttur sem er alveg tilvalinn í leirpottana mína. Ef hann á að vera aðalréttur er upplagt að hella kaldri tilbúinni sósu eða heimagerðri yfir í lokin – bara eins og hver og einn vill.

 

Hráefni

  • 500 g brokkólí (skera stilkinn af svo að það fari betur á fatinu)
  • 200 – 250 g halloumi ostur – skorinn í sneiðar
  • 1 gulur laukur – fínsaxaður
  • 5 – 6 litlir tómatar (eða 3 stórir)
  • 2 tsk þurrkað oreganó
  • 1 – 1½ msk olía
  • Salt og pipar

 

Dæmi um sósur – alls ekki nauðsynlegt heldur valkostur ef rétturinn er t.d. aðalréttur

Chilimæjó

Hvítlaukssósa með graslauk – allt hráefni hrært saman (gott að láta hana aðeins standa)

  • 30 – 40 g graslaukur – saxaður. Ath. nota rúmlega 20 g í sósuna og afganginn til að skreyta
  • 1 dl rjómaostur
  • 2½ – 3 dl sýrður rjómi
  • 2 tsk sítrónusafi
  • 2 – 4 hvítlauksrif – pressuð

Verklýsing

  1. Ofninn hitaður í 175°C (yfir- og undirhiti)
  2. Lítið vatn hitað í potti – saltað aðeins
  3. Stilkurinn skorinn af brokkólíinu
  4. Þegar vatnið er farið að sjóða er brokkólíið sett í pottinn og látið sjóða í 5 mínútur með loki yfir (7 – 8 mínútur fyrir þá sem vilja hafa brokkólíið meira soðið).  Suðutíminn fer svolítið eftir stærð en  það missir fallega græna litinn og verður mýkra ef það er soðið of mikið. Tekið úr pottinum og vatnið látið renna af
  5. Tómatar skornir í litla bita og laukur fínsaxaður – sett í skál
  6. Olíu, oreganó, salti og pipar blandað saman við
  7. Halloumi osturinn skorinn í sneiðar (ekki of þykkar). Skorið í brokkólíið og sneið af halloumi sett hér og þar.  Stundum sleppi ég því að skera rákirnar og set sneiðarnar þar sem ég get komið þeim fyrir
  8. Brokkólíð sett í leirpott eða eldfast mót og látið ofarlega í ofninn í 10 mínútur
  9. Tekið út og maukinu hellt yfir. Sett aftur í ofninn í 5 mínútur
  10. Eftir að rétturinn hefur verið tekinn út er gott að setja lok á til að halda honum heitum

 

Brokkólí soðið

 

Tvö brokkólí í vinnslu sem voru soðin aðeins lengur – halloumi ostur settur hér og þar

 

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*