Home » Gulrótarkaka með limekremi

Gulrótarkaka með limekremi

Gulrótarkaka með limekremi

  • Servings: /Magn: 12 sneiðar
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

Uppruni

Á haustin, þegar hægt er að fá nýjar gulrætur, er gaman að prófa ýmsar gerðir af gulrótarréttum. Þessi kaka er ein af gulrótartilraunum mínum. Kakan er frekar blaut en hún er góð og mjúk og geymist vel í nokkra daga.

Forvinna

Þessa köku má vel gera daginn áður.

Hráefni

Kaka

  • Smjör – til að smyrja formið
  • 1 dl kókosmjöl
  • 155 g smjör
  • 4 dl sykur
  • 4 egg
  • 2¼ dl hveiti
  • ½ tsk salt
  • 1½ msk kanill
  • 1 msk kardimommur
  • 1 tsk engifer
  • ½ tsk múskat
  • 1½ dl kókosmjöl
  • 5 dl rifnar gulrætur

Krem

  • 70 g smjör
  • 200 g philadelphia ostur
  • 4 dl flórsykur
  • 1 stk lime – safi og hýði
  • 1 dl kókos
  • Lime og 1 dl kókosmjöl til skreytingar

Verklýsing

Kaka

  1. Ofninn stilltur á 175°C. Kökuform – 23 cm í þvermál – smurt með smjöri og kókosmjöli stráð í botninn og innan á hliðarnar
  2. Smjör brætt og sykri blandað saman við
  3. Eggi, hveiti, salti, kryddi og kókosmjöli bætt út í og allt hrært saman. Gulærtur rifnar fínt og settar með. Hrært vel saman
  4. Deiginu hellt í formið og bakað í 35 mínútur. Kakan látin kólna

Krem

  1. Smjör og flórsykur þeytt saman. Rjómaostur þeyttur með ásamt fínrifnu hýði af lime og safanum
  2. Kakan sett á kökudisk og kreminu smurt yfir
  3. Skreytt með kókosmjöli og limesneiðum. Ef til eru ber er fallegt að skreyta með þeim

IMG_7754

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*