Crossiant með marsipanfyllingu
Uppruni
Viltu gera vel við þig á góðum degi eða helgartrít á einfaldan og góðan hátt? Það er alltaf hagstæðara að baka sjálfur heldur en að kaupa tilbúið en þar sem margir mikla baksturinn fyrir sér er hér mæst á miðri leið. Mér finnst fátt betra en crossiant með morgunkaffinu en hitaeiningafjöldinn hentar ekki alveg miðaldra konunni nógu vel til að það sé í boði daglega. Ég hef ekki ennþá bakað venjulegt crossiant en datt í hug þessi útgáfa eftir að ég heimsótti Mílanó um daginn. Einfaldast er að kaupa brauðin frosin og óbökuð (fást í helstu matvörubúðum) og útbúa mismunandi útgáfur eða bara sína uppáhalds. Uppáhaldið mitt er þessi útgáfa, fyllt með möndlumassa en yngra fólkið mitt kýs frekar súkkulaðifyllingu (sú uppskrift kemur von bráðar).
Áhald
Til að sprauta fyllingunni í er best að nota stóra plastsprautu með sverum stút (fæst í apótekinu – sjá mynd). Það má líka nota rjómasprautu með góðum stút.
Hráefni
- 10 stk frosin og óbökuð crossiant – látin þiðna
- 2½ dl rifið marsipan
- ½ dl vatn
- 1 poki möndluflögur (u.þ.b. 80 g)
- 1 egg
- Flórsykur – til að sigta yfir
Verklýsing
- Crossiant eru tekin úr frysti – ágætt að láta þau þiðna á smjörpappír
- Ofninn hitaður í 175°C (blástur)
- Rífið marsipan og vatn sett í skál og hrært saman – blandan sett í sprautuna og sprautað í crossiantið (sjá mynd). Mér finnst ágætt að stinga stútnum inn í miðjuna og vísa honum í annan endann, setja fyllingu og breyta svo stefnunni yfir í hinn endann… bara til að fyllingin fari vel inn
- Egg sett á disk og hrært saman. Möndluflögur settar á annan disk
- Hverju crossianti er velt upp úr egginu og svo upp úr möndluflögunum – sett aftur á smjörpappírinn
- Bakað í u.þ.b. 13 mínútur (þarf aðeins minni tíma en stendur á umbúðunum þar sem það er þiðnað)
- Tekið út og flórsykri sigtað yfir. Best nýbakað













