Home » Daimterta – sæt og góð

Daimterta – sæt og góð

Daimkaka

  • Servings: 8 manns
  • Difficulty: meðal
  • Prenta

Uppruni

Þessi uppskrift kemur frá mömmu.

Forvinna

Þessa köku þarf að búa til a.m.k. daginn áður þar sem hana þarf að frysta.

Hráefni

Marengsbotnar

  • 3 eggjahvítur
  • 2 dl sykur
  • 50 g valhnetur – grófsaxaðar

 

Fylling

  • 3 eggjarauður
  • 1 dl sykur
  • 4 dl rjómi
  • 4 lítil stk Daimsúkkulaði – grófhakkað
  • 3 blöð matarlím
  • 1 dl kaffi
  • Daimkúlur

Verklýsing

Marengsbotnar

  1. Hita ofninn í 150°C
  2. Eggjahvítur og sykur þeytt saman þar til blandan verður hvítt og létt. Gott að þeyta eggjahvíturnar aðeins fyrst – setja síðan helminginn af sykrinum og afganginn smátt og smátt út í og þeyta
  3. Valhnetum blandað saman við í lokin
  4. U.þ.b. 23 cm form notað til að teikna útlínur á bökunarpappír (2 hringi) og pappírnum snúið við
  5. Marengsblöndunni skipt á tvo botna og bakað í 45-60 mínútur – gott að losa bökunarpappírinn frá fjótlega

 

Fylling og samsetning

  1. Rjómi þeyttur
  2. Matarlím sett í kalt vatn og látið bíða í 5 mínútur
  3. Eggjarauður og sykur þeytt saman (gott að nota sömu skál og rjóminn var þeyttur í) –  þar til blandan verður ljós og létt
  4. Vatnið kreist úr matarlíminu og því blandað saman við heitt kaffi – látið kólna – hrært öðru hvoru
  5. Eggjablöndunni og rjómanum blandað varlega saman við ásamt kaffiblöndunni og að lokum er daimið sett út í – hrært varlega með sleif
  6. Annar marengsbotninn settur í springformið sem var notað til að teikna útlínurnar
  7. Helmingur af fyllingunni settur ofan á – hinn marengsbotninn setur þar ofan á og síðan hinn helmingurinn af fyllingunni
  8. Skreytt með daimkúlum
  9. Sett í frysti og tekið út 30 mínútum áður en tertan er borin fram

Geymsla

Tertan geymist vel í frysti – best undir plasti.

Marengsbotnar í vinnslu

Fylling og samsetning

Matarlímið kreyst eftir að hafa legið í köldu vatni í 5 mínútur … sett svo í heitt kaffið

Matarlímið leyst upp í kaffinu – látið aðeins kólna. 

Fylling sett á botnana

 

Skreytt með daimkúlum eða daim saxað

[/recipe]

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*