Hola… súrdeigsbrauð með cheddar og jalapeno

Lauflétt súrdeigsbrauð

  • Servings: /Magn: 1 brauð
  • Difficulty: meðal
  • Print

Uppruni

Ef þú miklar fyrir þér að baka súrdeigsbrauð – þá ættir þú að prófa þessa uppskrift.  Hún er einföld og góð – eina sem þú þarft að reikna með er að láta deigið hefast í 8 – 10  klukkustundir á svölum stað. Það er gaman að smakka mismunandi útgáfur af brauði en mér finnst þessi samsetning með jalapeno og cheddarosti mjög góð. Brikk er með hana í einu brauða sinna….  hugmyndin að þessari samsetningu er því komin þaðan.  Brauðið baka ég í leirpotti en það má líka nota pott sem þolir að vera í heitum ofni.

Dæmi um tímasetningu: Deigið er búið til að kvöldi, sett á svalan stað og bakað að morgni.  Ísskápur er aðeins of kaldur en ef það er eini svali staðurinn þá er ráð að geyma deigið við stofuhita þar til kominn er háttatími og setja það þá í kælinn.  Taka það svo út þegar farið er á fætur og deigið látið jafna sig við stofuhita í nokkrar klukkustundir.

Hráefni

  • 100 g súrdeigsgrunnur
  • 350 g vatn (frekar kaldara en heitara og alls ekki heitara en líkamshitinn)
  • 500 g hveiti
  • 80 – 120 g cheddarostur (skorinn í bita)
  • 3 msk jalapeno (skorið í bita)
  • 10 g gróft salt
  • 25 g vatn
  • Hveiti til að sigta yfir

Verklýsing

  1. Súrdeigsgrunnur, vatn, jalapeno og hveiti blandað saman í skál með sleikju
  2. Deigið látið standa aðeins, salti og 25 g af vatni blandað saman við og hnoðað með blautri hendinni – sjá myndband
  3. Deigið sett í box með loki og látið standa í 8 – 10 klukkustundir á svölum stað
  4. Boxinu hvolft á hveitistráð borð – deigið látið falla á borðið.  Cheddarostbitum dreift yfir hér og þar – sjá myndband. Brauðkúla mótuð
  5. Ofninn hitaður í 250°C (yfir- og undirhiti) – leirpotturinn látinn hitna með ofninum
  6. Brauðkúlan sett í pottinn og lokið á – bakað í 30 minútur
  7. Lokið tekið af og brauðið bakað í 15 mínútur til viðbótar
  8. Brauðið tekið úr pottinum og látið kólna aðeins áður en það er skorið

 

 

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*