Súper dúper fljótlegur BBQ kjúklingur í leirpotti

Úrbeinuð kjúklingalæri í BBQ - einfalt og barnvænt

  • Servings: 2 - 3
  • Difficulty: auðvelt
  • Print

Uppruni

Nú erum við komin að rétti fyrir þá sem eru hrifnir af BBQ.  Hann er vinsæll á heimilinu og þegar ég er að heiman er oft skellt í einn svona.   Ég kýs nú frekar kjúkling án BBQ  en það kemur ekki að sök þar sem yfirleitt er ekki tutla afgangs.  Þessi réttur er eldaður í Hönnupotti en það er líka hægt að nota pott með loki sem þolir að fara í ofn.

 

Hráefni

  • 1 pakki úrbeinaðir kjúklingaleggir
  • Kjúklingakrydd
  • BBQ sósa tilbúin í flösku eða heimatilbúin BBQ

 

Verklýsing

  1. Ofninn hitaður í 180°C
  2. Kjúkingaleggir kryddaðir vel með kjúklingakryddi og lagðir í pottinn.  Lokið sett á og látið vera í ofnunum í 30 mínútur
  3. Potturinn tekinn út og BBQ sósu hellt yfir kjúklinginn – lokið á og aftur inn í ofn í 15 mínútur

 

Meðlæti: Borið fram með hrísgrjónum og salati.

 

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*