Brownies með þristum - einföld og góð
Uppruni
Þessi uppskrift er ný útgáfa af Berglindarbrownies sem hefur verið mjög vinsæl í gegnum árin. Hún er smá klístrug en góð. Þeir sem vilja hafa hana aðeins meira bakaða láta hana bara doka aðeins lengur í ofninum. Sumum finnst gott að hafa hana volga en öðrum finnst hún betri beint úr ísskápnum.
Forvinna
Upplagt að baka kökuna daginn áður og ber hana fram kalda.
Hráefni
- 225 g smjör
- 240 g suðusúkkulaði
- 6 egg
- 4 dl sykur
- 250 – 300 g þristar (skornir í bita – ekki of smátt)
- 3 dl hveiti
- 1½ tsk vanilludropar
- 6 msk kakó
Verklýsing
- Ofninn hitaður í 130°C á blæstri
- Smjör og súkkulaði brætt saman yfir vatnsbaði á lágum hita
- Egg og sykur þeytt þar til hræran verður létt og ljós. Vanilludropum blandað saman við
- Sigta saman hveiti og kakó og blanda því út í eggjahræruna – blanda saman með sleikju
- Súkkulaði- og smjörblöndunni hellt saman við deigið ásamt þristabitunum – blanda varlega saman með sleikju
- Deigið sett í form (35×24 cm) með bökunarpappír í botninum – best að hafa formið rúmlega hálft og bakað í 32 – 37 mínútur. Flestir á heimilinu eru sammála um að kakan sé best þegar hún er svolítið blaut þ.e. ekki of mikið bökuð – baka hana yfirleitt í 32 mínútur. Ef formið er minna og hærra þarf að baka hana aðeins lengur
- Látíð kökuna kólna – þá er auðveldara að skera hana í bita
Meðlæti
Borin fram með ís eða þeyttum rjóma.
Geymsla
Geymist ágætlega í nokkra daga í kæli.









