Sítrónutrufflur
Uppruni
Sítrónur eru i miklu uppáhaldi hjá mér og mér finnst hvítt súkkulaði líka mjög gott. Ákvað að prófa þessar trufflur – góðar kúlur sem gott er að eiga í kæli og fá sér með kaffinu.
Hráefni
- 1½ lífræn sítróna
- ¾ dl rjómi
- 150 g hvítt súkkulaði (dropar eða bitar)
Hjúpur
- U.þ.b. 180 g hvítt súkkulaði (dropar eða bitar)
Verklýsing
- Sítrónur skolaðar og börkurinn tekinn af með flysjara
- Rjómi og börkur hitað í pott – suðan látin koma upp – látið standa í 10 mínútur
- Hvítir súkkulaðidropar settir í skál. Rjóminn hitaður aftur og börkur sigtaður frá. Heitum rjóma hellt yfir hvíta súkkulaðið. Hrært þar til allt súkkulaðið hefur bráðnað
- Blandan látin jafna sig í kæli í 2 klukkustundir – þegar blandan er orðin hörð eru mótaðar 20 – 25 litlar kúlur – geymdar í kæli
Hjúpur
- Helmingur af hvíta súkkulaðinu látinn bráðna yfir vatnsbaði á lágum hita. Skálin tekin af hitanum og afgangi af súkkulaðinu bætt við (dropar eða í bitum) – blandað saman þar til súkkulaðið er allt bráðnað. Þá ætti hitastigið á súkkulaðibráðinni að vera rétt
- Einni kúlu í einu dýft í súkkulaðibráðina, gaffall notaður til að lyfta kúlunni upp og látið drjúpa vel af henni. Gafflinum rennt yfir brúnina til að fjarlægja umfram súkkulaði
- Kúlan lögð á bökunarpappír og næsta kúla sett í súkkulaðibráðina
- Látið kólna í kæli eða þar sem er vel kalt
Geymsla
Geymist best í lokuðu boxi í kæli.