Home » Bearneaissósa úr eigin grunni

Bearneaissósa úr eigin grunni

Bearnaissósa úr eigin grunni

  • Servings: fyrir 5
  • Difficulty: erfitt
  • Prenta

Uppruni

Er að prófa mig áfram með Bearnessósu – hún er enn í vinnslu. Þetta mun takast að lokum en hefur gengið brösulega. Búin að reyna ýmsar útgáfu: í potti, í vatnsbaði en síðasta tilraun heppnaðist best og var í raun enföldust.  Ég hræði sósuna í hrærivél – mun klárlega gera það framvegis.

Forvinna

Hægt er að útbúa grunninn áður. Einnig er hægt að laga sósuna eitthvað áður og hita hana mjög varlega upp aftur í vatnsbaði.

Hráefni

Bearneaisgrunnur (essen)

  • 1½ dl hvítvín
  • ½ dl edik
  • 1 laukur – smátt saxaður
  • 2 msk ferskt estragon/tarragon – saxað + stilkar (best ferskt en einnig er hægt að nota þurrkað estragon en hafa þá minna af því – 1½ tsk þurrkuð)
  • Pipar

Sósan

  • 5 eggjarauður – við stofuhita
  • 300 g smjör
  • 1 – 2 msk ferskt estragon/tarragon eða 1½ tsk þurrkuð
  • Salt
  • Pipar

Verklýsing

Bearneaisgrunnur

  1. Hvítvín, edik, estragon og laukur hitað í potti og látið malla á vægum hita í u.þ.b. 30 mínútur – ekki láta bullsjóða allan tímann þannig að allt gufi upp
  2. Vökvinn sigtaður frá og lagður til hliðar. Vökvinn hjá mér hefur verið tæplega ½ dl

Sósan

  1. Smjör brætt í potti – látið standa aðeins (kólna). Mikilvægt að smjörið bráðni rólega og að vatn blandist ekki saman við. Ekki láta lok yfir
  2. Eggjarauður þeyttar aðeins í hrærivél
  3. Til að sósan skilji sig ekki er æskilegt að sama hitastig sé á eggjarauðum og smjöri. Smjörinu hellt yfir í mjórri bunu út í eggjarauðurnar – þeyta á góðum hraða í hrærivélinni
  4. Bearneaisgrunninum bætt rólega við og hrært áfram
  5. Estragoni bætt við. Saltað og piprað.
  6. Það má láta sósuna kólna en ef þarf að hita hana aftur er mikilvægt að gera það afar varlega og í potti en ALLS ekki á miklum hita – hræra stöðugt í. Ef sósan verður of heit þá skilur hún sig og verður ekki eins og hún á að vera. Ég hita hana aðeins í vatnsbaði þ.e. hálffylli vaskinn af heitu vatni, set hrærivélarskálina ofan í og hræri

Gott með

Ýmsum grillmat og steikum t.d. Retro nautalund.  Afgangur settur í kæli – tilvalinn á hamborgara eða í kjötsamloku.

Verklýsing 1 – 3

IMG_2672

Hluti af verklýsingum í 4 – 8
IMG_2671

IMG_2648

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*