Belgískar súkkulaðivöfflur
Uppruni
Þessa uppskrift fékk ég hjá Dagnýju vinkonu minni. Mjög vinsælt með kaffinu hjá tengdamömmu og er orðið hennar aðalsmerki.
Forvinna
Deigið er hægt að laga daginn áður og geymist vel í kæli.
Hráefni
- 5 dl hveiti
- 3 msk sykur
- 4 tsk lyftiduft
- 1 tsk salt
- 6 msk kókosolía/brætt smjör eða ólífuolía
- 1 stk kaffijógúrt (180 g )
- Rúmlega 1 dl Ab-mjólk/súrmjólk
- 2 dl mjólk
- 2 egg – gott að þeyta eggjahvítur sér en ekki nauðsynlegt
- 70-80 g saxað suðusúkkulaði
Verklýsing
- Öllu blandað saman í skál og hrært vel saman – súkkulaðið síðast
- Gott að láta deigið standa aðeins og jafna sig
- Belgískt vöfflujárn hitað og vöfflurnar bakaðar
Meðlæti
Borið fram með þeyttum rjóma.






