Home » Að gufusjóða grænmeti og ávexti

Að gufusjóða grænmeti og ávexti

Gufusjóða grænmeti og ávexti

  • Servings: 1
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

Hugmyndin

Sumt grænmeti og ýmsir ávextir standast ekki kreisti prófið ef þeir eru ferskir. Þá er sniðugt að gufusjóða matinn þannig að hann verði mjúkur. Með því að gufusjóða matinn, í stað þess að sjóða hann í vatni, varðveitast næringarefnin, litur og bragð í matnum.

Geymsla 

Hægt er að geyma gufusoðna matinn í kæli í nokkra daga. Alltaf gott að geta gripið í þetta á ferðinni eða bara fyrir næsta hádegismat.

Hráefni

  • Grænmeti (brokkolí/gulrætur/blómkál/kúrbítur/aspas)
  • Ávöxtur (epli/pera)
  • Vatn
  • Olía (má sleppa)

Verklýsing

  1. Grænmetið og/eða ávextirnir sett í sigti – gott að skera matinn niður í litla bita svo suðan taki styttri tíma
  2. Vatn sett í pott
  3. Sigtið sett ofan á pottinn
  4. Ef vatnið nær upp fyrir botninn á sigtinu þarf að hella aðeins af því þannig að það snerti ekki sigtið
  5. Vatnið er hitað að suðu
  6. Eftir um 20-30 mínútur ætti maturinn að vera soðinn í gegn þannig að hægt sé að stinga gaffli áreynslulaust í gegn
  7. Látið kólna
  8. Grænmetið sett fyrir framan barnið – sniðugt að hella smá olíu yfir grænmetið og/eða velta ávöxtunum upp úr kókosmjöli

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*