Home » Rútína í matartíma

Rútína í matartíma

Rútína í matartíma

  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

Hugmyndin

Þegar ungabörn byrja að borða sjálf og þangað til þau eru orðin rúmlega árs gömul fylgir því töluverður subbugangur. Eftir marga daga og vikur af miklum þrifum eftir hverja máltíð getur þetta orðið ansi þreytandi. Þá er gott að hafa gott skipulag og hér vil ég deila minni matar rútínu fyrir yngstu börnin með það markmið að þrifin taki sem stystan tíma.

Gott að eiga í eldhúsinu:

  • 2-4 ermasmekkir
  • 2-3 silíkon smekkir (ekki nauðsyn en þægilegt)
  • 1-2 silíkon diskar (ekki nauðsyn en þægilegt)
  • Matarstóll með belti og borðplötu
  • 10 stk eða fleiri þvottapokar
  • Moppa með eða án spreybrúsa
  • Lítil fata fyrir óhreint tau

Hádegismats rútínan

Undirbúningur

  1. Ég byrja á því að útbúa matinn og set hann á disk. Gott að gera það á meðan barnið sefur fyrsta daglúrinn sinn um hálftíma áður en barnið er vant að vakna. Ef barnið vaknar áður en ég hef náð að útbúa matinn þá kýs ég að taka saman eitthvað sem tekur stuttan tíma á meðan barnið leikur sér
  2. Ef tími gefst, áður en barnið vaknar, þá geng ég frá eftir eldamenskuna til að nýta tímann á meðan ég þarf ekki að vera að fylgjast með barni á vappi
  3. Barnið vaknar af daglúrnum og er spennt þegar það sér fullan disk af mat
  4. Byrja á því að koma barninu fyrir í matarstólnum með beisli
  5. Ermasmekkur settur á barnið
  6. Algjör snilldarlausn, til að minnka magnið af mat sem dettur niður milli fótanna, er að smella borðplötunni af stólnum, krækja vasanum á smekknum á stólinn og festa svo borðplötuna á aftur. Þá grípur smekkurinn langmest af matnum sem fellur niður
  7. Mér finnst gott að nota silíkon smekk líka sérstaklega fyrsta árið þegar meiri en helmingurinn af matnum fer í smekkinn og þá skófla ég matnum upp úr smekknum og set hann aftur á diskinn/borðið
  8. Maturinn settur fyrir framan barnið og það byrjar að borða

.  

. . .

.

Frágangur

  1. Þegar barnið er orðið satt og hætt að borða þá hefst frágangurinn
  2. Ég byrja á því að sækja þvottapoka í eldhúsið og bleyti hann með volgu vatni. Síðan þurrka ég andlit og hendur barnsins
  3. Silíkon smekkurinn tekinn af og settur á borðplötuna
  4. Síðan klæði ég barnið úr ermasmekknum en passa upp á að olnboginn fari ekki í matarklessu á borðinu
  5. Því næst er losað um beislið, barnið tekið úr matarstólnum og komið fyrir á leiksvæðinu á meðan ég geng frá
  6. Ég byrja á því að smella borðplötunni af stólnum með smekkjunum og fleygja því öllu í vaskinn
  7. Næst skola ég þvottapokann, sem var notaður til að þrífa barnið, og endurnota hann til að þurrka af matarstólnum ásamt matarklessum sem fóru á gólfið
  8. Ef það eru ennþá klessur og mylsnur á gólfinu sæki ég moppuna og moppa létt yfir allt í kring um stólinn
  9. Síðan fer ég að vaskinum og skola af ermasmekknum og hengi upp á snaga til þerris
  10. Í lokin þvæ ég borðplötuna og smelli henni aftur á matarstólinn
  11. Geng frá og hreinsa ef það er eitthvað meira eftir á meðan ég fylgist með barninu leika sér eða vera á flakki.

Hver á sína rútínu

Hver og einn fylgir sinni eigin rútínu en þessi aðferð hefur hentað mér vel. Mér finnst gott að hafa hreint í kringum mig og að mínu mati er besta leiðin að ganga frá jafnóðum svo að draslið safnist ekki upp. Þegar maður er í fæðingarorlofi með lítið barn er auðvitað gott að geta nýtt daglúrana til að slaka aðeins á en það er ekkert mál að gefa sér 15-30 mínútur í frágang á meðan barnið sefur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*