Einfalt með grillmatnum
Uppruni
Þegar boðið er upp á svínakjöt á heimilinu eins og secreto notum við heimagert chimichurri sem er klárlega besta sósan. Chimichurri er einfalt að búa til og passar með ýmsu grillkjöti. Uppskriftirnar eru óteljandi á netinu en ég set hér inn mína útgáfu til að halda henni til haga.
Hráefni
- 1 msk ferskt (saxað) eða 1 tsk þurrkað óreganó
- 1 búnt steinselja – söxuð
- 5 hvítlauksrif – söxuð
- 1 chilipipar – fræhreinsað og saxað
- 1½ dl olía
- ½ msk rauðvínsedik
- Salt og pipar
Verklýsing
- Öllu hráefni blandað saman í skál





