Home » Pikklað rauðkál – gott með mörgu

Pikklað rauðkál – gott með mörgu

Pikklað rauðkál - einfalt og gott

  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

Uppruni

Þegar grilltímabilið hefst fyrir alvöru finnst mér gott að geta gengið að pikkluðu rauðkáli  í kælinum.  Það passar mjög vel með ýmsum grillmat og er meinholt.  Skemmtileg tilbreyting t.d. á hamborgarann eða pylsurnar. Bónusinn er að hér er um að ræða góða geymsluaðferð þar sem rauðkálið helst lengur ferskt og gott.  Mæli með að luma á pikkluðu rauðkáli í kælinum og bjóða upp á með sumargrillinu.

Hráefni

  • 400 g rauðkál – hreinsa ytra byrðið og skera í þunnar sneiðar
  • 1 vorlaukur – efri parturinn (græni) – skorinn í þunnar sneiðar
  • ½ tsk salt
  • 2 msk safi úr lime / límónu (u.þ.b. 1 lime)
  • ½ msk hunang

Verklýsing

  1. Rauðkálssneiðarnar settar í stórt ílát.  Salti stráð yfir og kálið kreist með höndunum
  2. Vorlaukssneiðum, limesafa og hunangi bætt við – látið standa í u.þ.b. 10 mínútur
  3. Geymist vel í lokuðu íláti í kæli

 

 

 

 

 

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*