Páskalegar og ofurgóðar smákökur
Uppruni
Hér kemur ein lauflétt uppskrift að dásamlegum páskacookies. Það er bæði fljótlegt og sáraeinfalt að baka þessar smákökur. Fyrir lakkrísfólkið er upplagt að nota þristakúlur sem gefa skemmtilegan páskablæ. Þeir sem vilja síður lakkrís geta notað smáegg í staðinn. Það má hiklaust mæla með að skella í páskabombu í tilefni páskanna eða bara þegar gera á vel við sig.
Hráefni
- 130 g smjör
- 1 dl dökkur muscovadosykur (hægt nota venjulegan púðusykur)
- 1 dl sykur
- 1 egg
- 3 dl hveiti
- 1 tsk vanillusykur
- Tæplega 1 tsk lyftiduft
- Salt á hnífsbroddi
- 230 g Þristakúlur – skornar í bita (eða 100 g súkkulaðiplötur og 80 g súkkulagðismáegg – skorið í bita)
Verklýsing
- Ofninn stilltur á 175°C – blásturstilling
- Smjör brætt í potti – potturinn tekinn af hellunni
- Muscovadosykri, sykri og eggi blandað saman með sleif eða sleikju
- Hveiti, vanillusykri, lyftidufti og salti bætt við í pottinn – allt hrært saman
- U.þ.b. ¼ af þristabitunum (mulningur) lagður til hliðar – 3/4 af mulningnum blandað saman við deigið í pottinum
- 12 – 15 kúlur myndaðar úr deiginu – gott að nota skeið eins og t.d. ísskeið til að móta hverja kúlu. Hver kúla lögð á ofnplötu með bökunarpappir undir – má þrýsta aðeins niður (passa að hafa bil á milli þar sem hver kúla getur stækkað við bakstur)
- Aðeins af því sem eftir er af þristamulningnum dreift á bollurnar
- Bakað í 7 – 10 mínútur
- Látið kólna áður en kökurnar eru teknar af bökunarpappírnum
Hugmynd að eftirrétti: Samloka með rjóma eða ís á milli. Hægt er að minnka stærðina með því að skera hverja köku í tvennt og setja ís eða rjóma á milli – láta skurðarlínurnar snúa niður. Hægt er að skreyta og bragðbæta t.d. með ávöxtum eða heimagerðri súkkulaðisósu.
Borið fram sem smákökur en einnig hægt að bera fram sem eftirrétt
Hugmynd fyrir þá sem vilja síður lakkrís

















