Marineraður tandoori þorskhnakki
Uppruni
Þessa uppskrift fékk ég hjá Elínu en hún hefur notað hana í matarboðum við góðan orðstír. Mér finnst svolítið halla á úrval fiskiuppskrifta sem falla í kramið hjá hópnum mínum og ákvað að láta reyna á þessa. Það er skemmst frá því að segja að ég var vinsamlegast beðin um að setja hana inn á síðuna sem fyrst. Áferðin á fiskinum minnir aðeins á nætursaltaðan þorsk þar sem hann hefur legið í saltri sojasósunni. Mér finnst gott að bjóða upp á mangó chutney og sýrðan rjóma sem meðlæti. Sýrða rjómann má aðeins poppa upp með ferskri kryddjurt eins og basil eða steinselju. Hér hefur sem sagt bæst við einn góður og bragðmikill fiskréttur.
Hráefni
- 800 – 900 g þorskhnakkar
Marinering
- 1 dl sojasósa
- 1 dl góð olía
- 1 dl steinhreinsaðar döðlur (má líka nota púðursykur)
- 1 msk Tandoorikrydd
- 3 hvítlauksrif
- – skornir smátt
- 2 x 2 cm bútur af fersku engiferi
- Nokkur blöð af ferskri basil eða 1 tsk basil (má sleppa)
- 1 – 2 tsk nýmalaður svartur pipar
Verklýsing
- Marinering: Allt hráefni maukað saman í matvinnsluvél. Fiskurinn skorinn í hæfilega stóra bita (sjá mynd) og látinn liggja í maríneringunni í a.m.k. 3 tíma fyrir eldun
- Ofninn stilltur á 170°C (Yfir- og undirhiti)
- Fiskurinn steiktur á rjúkandi heitri grillpönnu eða grillaður á útigrilli. Steikt á báðum hliðum til þess að fá fallegar lit á fiskinn. Ekki þarf að setja feiti á pönnuna þar sem olía er í maríneringunni en smá smjörklípa gefur gott bragð
- Fiskurinn settur í eldfast fat (eða neðri hluta Hönnupotts) ásamt því sem eftir er af marineringunni. Eldað inni í ofni í 10 – 13 mínútur (fer aðeins eftir þykkt bitanna)
Fyrir og eftir 3 klukkustundir
Steikt á grillpönnu til að fá renndur…
Fyrir og eftir að hafa farið í ofninn











