Hrákjöt með sveppum og engiferi
Uppruni
Þá kemur hér önnur útgáfa af einu af mínu uppáhalds … nautatartar. Ég veit að það er ekki allra en með gæða hráefni má gera góðan próteinrétt. Þessa uppskrift fékk ég hjá Guðrúnu og er frábært að bera fram sem forrétt …en eins og áður hefur komið fram þá er eins gott að það sé kjötfólk sem er að setjast að borðum.
Þar sem við erum að vinna með hrátt kjöt þarf að hafa eftirfarandi í huga:
- Hreinlæti þar sem við erum að handfjatla hrátt kjöt
- Nota íslenskt gæðakjöt – skera frá sinar og fitu
- Til að forðast baktreríur er meginreglan sú að geyma kjötið í kæli og jafnvel að skella því aðeins í frystinn (með því að hafa kjötið hálffrosið er auðveldara að skera það niður). Kjötið er því ekki látið standa lengi í stofuhita
- Ekki fyrir ófrískar konur
Hráefni
- 250 g nautakjöt eins og nautalund, nautafile eða innra læri – skorið í lengjur og svo í litla bita
- 1 – 1½ msk soya japönsk
- 3 msk majónes
- 4 sneiðar af súrdeigsbrauði – ristaðar (má sleppa)
- Smjör til steikingar
- Salt og pipar
- Límona til skrauts – má sleppa
- Parmesanostur – rifinn
Sveppablanda
- 2 dl sveppir – skornir smátt
- 2 msk safi úr límonu
- 1 tsk fínskorið/rifið engifer
- 1 tsk sesamolía
- 1 kryddmál sykur (kryddmál er 1/5 tsk)
- 1 kryddmál salt
Verklýsing
- Kjötið er skorið niður í teninga. Það eru til ýmsar leiðir með það … sumir skera það fyrst langsum og svo hvern bita aftur langsum og síðan þvert í litla bita… það er smekksatriði hversu fínt kjötið er saxað niður. Það má gera töluvert áður en kjötið er borið fram en þá skiptir máli að geyma það í lokuðu íláti í kæli. Best að taka kjötið úr kæli aðeins áður en það er borið fram svo að það sé ekki alveg ískalt
- Sveppablanda: Sveppum, límónusafa, engiferi, sesamolíu, sykri og salti blandað saman í skál – látið standa í 5 – 10 mínútur. Vökvinn sigtaður frá
- Kjötið tekið úr kæli og hrært saman við stuttu áður en það er borið fram
- Brauðið steikt í smjöri. Fallegt að skera út hringi úr brauðinu. Ein útgáfa er að nota hálfa límónu í staðinn fyrir brauð (þá þarf aðeins að skera af henni svo að hún sé stöðug)
- Kjöt sett ofan á hvert brauð – gott að setja hringmót á brauðið og kjötið ofan í það. Taka svo hringmótið af og þá myndast falleg heild
- Parmesanostur rifinn yfir










