Home » Heimagert plómuchutney

Heimagert plómuchutney

Plómuchutney með chili og engifer

  • Servings: :/Magn: 1 krukka
  • Difficulty: auðvelt
  • Prenta

Uppruni

Plómuuppskeran í óupphitaða gróðurhúsinu mínu er í september.  Stundum er uppskeran góð og þá hefur mér og mínu fólki ekki tekist að sporðrenna þeim öllum.  Ég fann þessa góðu uppskrift að plómuchutney og hef notað hana fyrir þær plómur sem ekki komast í gegnum gæðaeftirlit heimilisfólksins.   Plómur eru sem betur fer í boði í verslunum og mörgum krökkum finnst gott að hafa þær með í nestisboxinu.  Ef lúnar plómur finnast í ávaxtaskúffunni er upplagt að nýta þær í plómuchutney en það á t.d. vel með kjúlla eða ofan á bleikjuna.

 

Hráefni

  • 300 – 350 g plómur
  • 1 dl (75 g) muscovadósykur eða brúnn sykur
  • ½ dl rauðvínsedik
  • 1 rauður chilipipar  – saxaður fínt niður (smekksatriðið hversu mikið fræhreinsað – meiri fræ .. þeim mun sterkara)
  • 1 msk engiferrót – rifin fínt. Ath. ef ég nota lífrænt engifer sleppi ég að flysja það (mér skilst að hýðið sé afskaplega hollt)

 

Verklýsing

  1. Plómur skornar niður og steinhreinsaðar – settar í pott
  2. Sykri stráð yfir og látið bíða um stund
  3. Suðan látin koma upp og ediki, chili og engifer bætt við
  4. Látið sjóða á meðalhita í 30 – 40 mínútur
  5. Sett í hreina krukku (ágætt að sjóða hana í örstutta stund), lok skrúfað á

 

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*