Uppruni
Uppskrift að þessum ís fékk ég hjá góðri konu og má segja að hann hafi hakað í bæði boxin, einfaldur og góður. Kröfurnar eru litlar þar sem hráefnum er blandað saman og sett svo beint ofan í ísvélina. En jú það er ein krafa … þennan ís er best að gera í ísvél.
Hráefni
- 1 dós concentrade (fæst t.d. í Krónunni og Fjarðarkaupum)
- 1 dós kókosmjólk (350 – 400 ml)
- 2 lífrænar límónur (lime) – börkur og safi
Verklýsing
- Hráefnum er blandað saman og síðan sett í ísvélina
- Eftir að ísinn er tilbúinn er hann settur í box og svo inn í frystinn þar til hann er borinn fram








Þannan langar mig að prófa að gera.
Mig langar að vita hvaða tegund af ísvél þú ert með og hvort þú mælir með henni, eða einhverri annari sem þú þekkir til.
Sjálfur hef ég í nokkur ár átt ísgerðarskálina fyrir Kichenaid hrærivélina og verið sæmilega ánægður með hana.
Hún hefur samt með tímanum misst talsvert af kæli eiginleikanum og nú er það þannig að mér finnst hún varla nothæf.
Langar ekki að kaupa aðra skál og vil frekar kaupa vél.
Þannig að, mælir þú með vélinni sem þú ert með?
Takk svo fyrir allar frábæru uppskriftirnar þínar í gegnum árin, hef prófað margar og aldrei orðið fyrir vonbrigðum.
Sæll Hafliði og afsakaðu sein svör.
Það er eitthvað vesen á athugasemdardálkinum á síðunni og ég sé stundum ekkert fyrr en löngu löngu seinna eða jafnvel ekki.
Gaman að heyra að þér líkar uppskriftirnar á síðunni.
Ég er með ísvél sem heitir Cuisinart – ég fór í matarboð fyrir nokkrum árum til vina minna og fékk þennan geggjaða ís úr svona ísvél og það var bara ekkert annað í stöðunni en að panta eins ísvél á Amazon þetta sama kvöld. Vélin var svo komin nokkrum dögum seinna … dýr var hún og plássfrek en hverrar krónu virði. Mín ísvél hefur svo gert það sama í matarboði… leitt af sér fleiri kaup. Hún er þannig að það þarf bara að setja í hana blönduna og svo u.þ.b. 40-50 mínútum seinna er ísinn tilbúinn.
Með kveðju, Hanna
Glæsilegt 👍🏻
Takk fyrir svarið.