Hvítlaukskartöflustappa … já takk

Kartöflustöppugratin með hvítlauk

  • Servings: 6
  • Difficulty: meðal
  • Print

Uppruni

Þessi réttur er bæði góður og þægilegur til að hafa sem meðlæti.  Þegar hvítlaukur er soðinn mildast bragðið af honum þannig að það er langt í frá að það sé yfirgnæfandi hvítlauksbragð heldur bara mildur og góður hvítlaukskeimur.  Hægt er að útbúa gratinið fyrr og þá er bara eftir að baka hann aðeins í ofni.  Passar með ýmsum kjöt- og fiskréttum eins og t.d. Blálöngu úr Vesturbænum.

Forvinna

Upplagt að gera réttinn tilbúinn fyrr um daginn.

Hráefni

  • 1 – 1,2 kg kartöflur
  • 1 – 1½ hvítlaukur – smekksatriði en mér finnst gott að hafa mikið af honum
  • 50 – 100 g smjör
  • 1 dl matreiðslurjómi eða rjómi

Verklýsing

  1. Kartöflur flysjaðar eða ekki – smekksatriði hvort hýðið fær að fljóta með
  2. Hvítlauksrifin flysjuð
  3. Kartöflur og hvítlauksrif sett í pott með vatni og suðan látin koma upp – soðið á meðalhita í 20 mínútur
  4. Kartöflur maukaðar ásamt hvítlauknum.  Smjör og rjóma bætt saman við og blandað saman
  5. Ofninn hitaður í 180°C (blástur)
  6. Kartöflustappan sett í edlfast fat (eða Hönnupott) og inn í ofn – með loki eða án.  Fallegt að fá smá lit á stöppuna

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*