Belgískar vöfflur fyrir lakkrísfólkið
Uppruni
Hér kemur ein súperauðveld og fljótleg vöffluuppskrift. Hér er bara nóg að bera fram þeyttan rjóma eða ís með og svo spillir góður kaffisopi ekki fyrir.
Forvinna
Deigið má laga eitthvað áður og stundum er bara betra að láta það standa aðeins.
Hráefni
- 300 g hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 150 g þristar eða snjóboltar frá Kólus – smátt skorið
- ¼ tsk hjartarsalt
- 4 dl mjólk
- 1 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 80 g smjör – brætt
Verklýsing
- Öllu hráefni blandað saman – hrært vel
- Gott að láta deigið standa aðeins á meðan vöfflujárnið er að hitna
- Bakað – ágætt að smyrja járnið aðeins með smjöri eða olíu. Vöfflurnar verða stökkar og fínar ef þær bíða á grind eftir bakstur
Borið fram með
Þeyttum rjóma eða ís
Vöfflur með snjóboltum frá Kólus