Granola – ósætt

Granóla - ósætt

  • Servings: /Magn: 1 krukka
  • Difficulty: auðvelt
  • Print

Uppruni

Þessa uppskrift fann ég í blaði en breytt henni aðeins.  Mér finnst best að geyma Granóla í krukku í kæli (geymist betur) – mjög gott að láta út í ab mjólk, ósoðna hafragrautinn eða chia grautinn.

Hráefni

  • 1 dl möndlur – saxaðar gróft
  • 1 dl cashewhnetur – saxaðar gróft
  • 1 dl hörfræ
  • 1 dl sesamfræ
  • 1 dl sólkjarnafræ
  • ¼ – ½ dl graskersfræ
  • 1 dl kókosmjöl
  • 3 msk chiafræ
  • 2 msk svört kínóafræ
  • 1 tsk kanill
  • ½ dl repjuolía (rapsolía)
  • 1 dl vatn

Eftir bakstur

  • Rúsínur (má sleppa)
  • Gojaber (má sleppa)

Verklýsing

  1. Ofninn hitaður í 200°C (yfir- og undirhiti)
  2. Þurrefnum blandað saman
  3. Repjuolíu og vatni hellt út í
  4. Blöndunni dreift í ofnskúffu og bakað í 20 mínútur (hræra í öðru hvoru)
  5. Sett í krukku – ágætt að geyma í kæli

 

 

 

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*