Ofnbakaður fiskur með mascarpone og sólþurrkuðum tómötum
Uppruni
Þennan rétt fékk ég í Skagafirðinum – sérstaklega góður og ekki spillir fyrir hvað hann er einfaldur og fljótlegur. Það er alltaf gaman þegar börnunum þykir fiskréttir góðir og þessi er einn af þeim.
Hráefni
- 800 g þorskhnakki, langa eða annar fiskur
- 2 – 3 hvítlauksrif – pressuð
- 200 – 250 g niðursoðnir maukaðir tómatar
- 200 – 250 g mascarponeostur
- 1 – 1½ dl sólþurrkaðir tómatar í olíu – má gjarnan setja aðeins af olíunni með
- Garlic pepper
- Parmesanostur
- Grænmeti eins og gulrætur eða vorlaukur. Gulrætur skornar í þunnar sneiðar og vorlaukur skorinn í tvennt – má sleppa
- Saltflögur
Verklýsing
- Ofninn hitaður í 180°C
- Fiskurinn lagður í eldfast fat og sólþurrkuðum tómötum dreift yfir
- Mascarponeostur og tómatamauk sett í pott og hitað þar til allt hefur blandast vel saman – hvítlauk bætt við
- Gulrótum eða öðru grænmeti dreift yfir fiskinn
- Blöndunni hellt yfir fiskinn og rifnum parmesanosti stráð yfir
- Fatið sett í ofninn og rétturinn látinn bakast í 15 – 20 mínútur (fer eftir þykkt fiskbitana)
- Gott að dreifa grófu salti aðeins yfir áður en rétturinn er borinn fram
Meðlæti:
Kartöflur eða hrísgrjón, ferskt salat og nýbakað brauð.