Gómsætir snúðar með svörtum birkifræjum
Uppruni
Eitt að því besta sem ég fæ með kaffinu eru heimabakaðir snúðar. Ég hef gaman af því að gera ýmsar útgáfur og er þetta ein af þeim – fékk hugmyndina úr sænsku blaði en ég breytti hlutföllunum. Gerbakstur er einfaldur hafi maður komist upp á lagið. Það skiptir máli að gefast ekki upp þó brösulega gangi til að byrja með. Það spillir ekki fyrir að það er mikil búbót að baka snúða, ódýrt hráefni og tilvalið að setja það sem eftir er í frystinn. Þeir eru jafngóðir úr frystinum. Það þarf bara að velgja þá aðeins í örbylgjuofninum.
Hráefni
Deig
- 5 dl mjólk
- 50 g ger
- U.þ.b. 1100 g hveiti
- 170 g sykur
- 1½ tsk salt
- 2 egg – við stofuhita
- 200 g smjör – við stofuhita
Fylling og penslun
- 50 – 60 g svört birkifræ
- 3 dl vatn
- 70 g smjör
- 150 g sykur
- 1 egg
- Perlusykur
Verklýsing
Deig
- Mjólk hituð í 37°C (hún má alls ekki vera heitari en 37°C og gerir minna til þó að hún sé aðeins kaldari). Gerið sett í skál ásamt helmingi af hveitinu og mjólkinni – blandað saman
- Látið hefast í 1 klukkustund með rakan klút yfir skálinni – á stað sem ekki er trekkur
- Sykri, salti og smjöri bætt við í skálina ásamt eggjum. Afgangi af hveitinu (lítið í einu) hnoðað saman við deigið þar til það verður þannig að hægt sé að koma við það án þess að það klístrist við mann – passa að hafa það ekki of þurrt
Fylling, penslun og bakstur
- Birkifræ soðin í vatni þar til vatnið er að mestu gufað upp – hræra í öðru hvoru
- Birkifræ maukuð aðeins með töfrasprota (má sleppa). Smjöri og sykri bætt saman við – blanda vel saman. Ágætt að láta kólna aðeins
- Deiginu er skipt í tvennt – flatt út ca 25 (30)x50 (60) cm
- Helmingi af fyllingunni dreift yfir annan hlutann
- Hægt er að gera snúða með því að rúlla öllu deiginu upp. Til þess að snúðarnir verði ekki misstórir er gott að skipta rúllunni í tvennt. Síðan er hverjum helmingi skipt í þrjá hluta og að lokum hverjum þriðjungi í tvo. Það eiga að koma 24 snúðar úr hverri rúllu. Gott að gera fyrst far með hnífnum, þegar verið er að skipta niður, og skera svo alveg niður þegar búið er að áætla stærð snúðanna – þá eru minni líkur á að fyllingin leki
- Einnig er hægt að skipta deiginu í tvennt og annar helmingurinn lagður ofan á hinn. Því næst er skipt niður með sama hætti og þegar snúðar eru gerðir nema nú eru skornar ræmur (gott að nota pizzuskera). Hver ræma er tekin, snúið upp á hana frjálslega og létt og síðan er undið upp á hana þannig að óformlegur snúður myndast
- Ef eitthvað af fyllingunni lekur út má nota skeið til að dreifa því ofan á snúðana
- Gera það sama við hinn helminginn => samtals koma 48 snúðar úr uppskriftinni (stundum verða þeir 50 hjá mér)
- Snúðunum/vafningunum raðað á smjörpappír+bakstursplötu og látið hefast aftur í 1 klukkustund með klút yfir eða þar til snúðarnir hafa tvöfaldað stærð sína
- Ofninn hitaður í 225°C (yfir- og undirhiti)
- Snúðarnir penslaðir með pískuðu eggi (má píska örlítilli mjólk með til að eitt egg dugi). Perlusykri stráð yfir og snúðarnir bakaðir í u.þ.b. 5 -10 mínútur (fylgjast með eftir 5 mínútur svo að snúðarnir brenni ekki)
Góð ráð
- Gott er að finna rétt hitastig á mjólkinni með því að dýfa olnboganum aðeins ofan í – ef sami hiti er á blöndunni þá er hann nálægt 37°C
- Ef hitinn á vökvanum er hærri en 37°C eyðileggst gerið og deigið mun ekki hefast. Ef hitastigið er lægra en 37°C tekur hefingin lengri tíma. Því kaldara þeim mun lengri hefingartími
- Klúturinn, sem settur er yfir skálina, má gjarnan vera rakur – hjálpar til við hefingu
- Best að eggin séu við stofuhita. Ef bætt er við köldum eggjum ofan í deigið mun það hægja á hefingu
- Látið hefast á stað það sem ekki er of svalt eða getur verið trekkur. Ef sólin skín þá er tilvalið að láta skína á klútinn
Geymsla
Snúðarnir geymast vel í frysti.
[/directions]









