Jólalegt sólarhringsbrauð
Uppruni
Þessi uppskrift er jólaleg útfærsla á sólarhringsbrauðinu. Hún er bæði auðveld og þægileg. Það eina sem skiptir máli er að muna að leggja í brauðið kvöldið áður.
Forvinna
Þarf að gera kvöldið áður.
Hráefni
- 380 g hveiti (ef 1½ uppskrift þá 570 g)
- ¼ tsk þurrger (ef 1½ uppskrift þá 0,4 tsk)
- 1½ tsk salt (ef 1½ uppskrift þá 2,25 tsk)
- 380 ml volgt vatn (ef 1½ uppskrift þá 570 ml)
- ½ – 1½ dl þurrkuð trönuber – magn smekksatriði
Verklýsing
- Hveiti, þurrgeri, trönuberjum og salti blandað saman í skál
- Volgu (alls ekki of heitu, frekar aðeins kaldara) vatni blandað saman við og hrært varlega
- Breiðið plastfilmu yfir skálina og látið standa yfir nótt
- Daginn eftir er fínt að setja deigið á hveitistráða borðplötu, leggja rakan klút yfir og láta standa í klukkustund (má sleppa)
- Hitið ofninn í 250°C
- Smyrjið emaléraðan stálpott eða leirpott með olíu. Það er betra að láta pottinn hitna með ofninum og setja deigið í heitan pottinn
- Látið deigið í pottinn og bakið í 30 mínútur
- Ágætt að taka þá lokið af og leyfa brauðinu að vera lengur í ofninum til þess að fá fallegan lit
Geymsla
Brauðið geymist vel í nokkra daga en gott að sneiða það niður og frysta.




Þetta er alveg frábær heimasíða, mjög flott og til hamingju!