Quesadillas – fylltar tortillur að hætti Drífu

Quesadillas - fylltar tortillur að hætti Drífu

  • Servings: fyrir 5 - 7
  • Difficulty: meðal
  • Print

Uppruni

Dóttir mín býr stundum til þenna rétt og er hann bæði vinsæll og góður. Ef afgangur er af sósunni nota ég hana á fisk eða í pastasósur.

Forvinna

Sósuna er hægt að gera áður.

Hráefni

Sósa

  • 3 msk rjómaostur
  • ½ vorlaukur – saxaður
  • ½ tsk chillimauk
  • 1 msk tacokrydd
  • 1 msk steinselja – söxuð

Kjúklingalundir

  • 600 gr kjúklingalundir eða ein askja
  • Kjúklingakrydd
  • Olía til steikingar

Annað meðlæti – eftir smekk

  • Salsasósa
  • Tortillur
  • Rifinn ostur
  • Ostasósa – tilbúin
  • Maísbaunir
  • Nachos – mulið

Verklýsing

Sósa

  1. Allt hráefni hrært vel saman í skál

Kjúklingalundir

  1. Kjúklingalundir kryddaðar vel og steiktar á pönnu í 10 – 15 mínútur eða þar til þær eru steiktar í gegn. Skornar í litla bita

Samsetning

  1. Sósa smurð á tortilluna og kjúklingur, ostur, nachos, maís – eða það sem hver og einn vill –  er sett ofan á annan helminginn – tortillan lokuð. Gott að smyrja sósu á báða helminga
  2. Panna hituð á meðalhita og tortillan látin hitna vel í gegn – snúið við þegar kominn er fallegur litur á kökuna
  3. Tortillan tekin af pönnunni og skorin í tvennt eða borin fram óskorinn –  alveg eftir smekk

Meðlæti

Gott með salati, avókadó og tómötum eða eitt og sér.

Hráefni – rifinn ost vantar á myndina

11414410_10152997858421849_1109005329_n

IMG_2525

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*