Afbragðs konfekt með kókos og graskersfræjum - auðvelt og fljótlegt
Uppruni
Ég fékk þetta konfekt hjá Eyrúnu fyrir mörgum árum. Mér þótti það mjög gott og hef síðan þá búið það til fyrir jólin. Mjög auðvelt og frískandi konfekt.
Hráefni
- 200 g kókosmassi frá Odense
- 2 msk graskersfræ
- 100 – 150 g 70% suðusúkkulaði
- Nokkur graskersfræ til skrauts
Verklýsing
- Vatn sett í pott, skál sett ofan á pottinn og vatnið hitað. Varist að láta vatnið bullsjóða þar sem það getur skvetst í skálina og skemmt súkkulaðið. Suðusúkkulaði brotið í bita og sett í skálina – látið bráðna hægt
- Kókosmassa og graskersfræjum blandað saman í skál
- Litlar kúlur mótaðar og þeim raðað á disk
- Einni kúlu í einu dýft í súkkulaðibráðina, gaffall notaður til að lyfta kúlunni upp og látið drjúpa vel af henni. Gafflinum rennt yfir brúnina til að fjarlægja umfram súkkulaði
- Kúlan lögð á bökunarpappír og næsta kúla sett í súkkulaðibráðina
- Þegar allar kúlurnar eru komnar á bökunarpappírinn er eitt graskersfræ sett ofan á hverja kúlu til skrauts
- Látið kólna í kæli eða þar sem er vel kalt
Geymsla: Geymist best í lokuðu íláti í kæli.








