Home » Ljúffengar lúsíubollur

Ljúffengar lúsíubollur

Ljúffengar lúsíubollur

  • Servings: 30 - 40 bollur
  • Difficulty: meðal
  • Prenta

Uppruni

Á hverju ári baka ég lúsíubollur – þær eru bæði góðar, fallegar og svo vekja þær góðar minningar frá æskuárum mínum í Svíþjóð.  Þessi uppskrift kemur frá mömmu.

Forvinna

Það er hægt að setja aðeins minna af geri í deigið og láta fyrstu hefingu verða í kæli yfir nótt.

Hráefni

  • 50 g pressuger eða bréf (12 g) þurrger
  • 150 g smjör
  • ½ l mjólk
  • ½ tsk salt
  • 2 dl sykur
  • 1 stk sykurmoli (eða nota aðeins af sykrinum)
  • 1 egg – við stofuhita
  • ½ tsk saffran
  • 12 – 15 dl hveiti
  • 1 egg – til að penslunar fyrir bakstur
  • Rúsínur, hakkaðar möndlur og perlusykur – eða það sem hverjum og einum finnst best

Verklýsing

  1. Mjólk og smjör hitað í potti (best að bræða smjörið fyrst og hella mjólkinni út í). Blandan á að vera 37°C eða aðeins lægri (sjá: Gerbakstur – góð ráð). Eggi bætt við – ágætt að hafa allt á sama hitastigi
  2. Saffran steytt í morteli ásamt sykurmola eða msk af sykri
  3. Ger, salt, saffranmulningur og sykur sett í skál og blandað saman. Nokkrum matskeiðum af mjólkurblöndunni hellt í – blandað saman þar til allt leysist upp. Afgangi af mjólkurblöndunni hellt saman við
  4. Helmingur af hveiti settur í skálina – blandað saman
  5. Afgangi af hveiti bætt við og hnoðað þar til deigið verður þannig að hægt sé að koma við það án þess að það klístrist við mann – betra að hafa það aðeins blautara en þurrt
  6. Hveiti stráð yfir deigið og látið hefast í 45 – 60 mínútur eða þar til það hefur tvöfaldað stærð sína – hafa rakan klút yfir skálinni. Sett á stað þar sem ekki er trekkur
  7. Deigið sett á hveitistráð borð og skipt í 30 jafna bita
  8. Mótaðar bollur eða kransar – um að gera að nota hugmyndaflugið. Stundum hafa börnin búið til stafina sína (sjá ýmis dæmi hér fyrir neðan). Skreytt með rúsínum
  9. Bollunum raðað í ofnskúffu með bökunarpappír og þær látnar hefast með klút yfir í 30 – 45 mínútur. Nauðsynlegt að hafa gott bil á milli svo að þær klessist ekki saman
  10. Ofninn hitaður í 250°C (yfir- og undirhiti) ef smábollur eru bakaðar, 225°C fyrir stærri bollur og 225°C ef bakaðir eru stórir kransar
  11. Penslað með hrærðu eggi og skreytt með perlusykri
  12. Bakað í ofni:
    1. Smábollur í 5 – 7 mínútur
    2. Stærri bollur í u.þ.b. 10 mínútur
    3. Stórir kransar í 20 – 25 mínútur

Ágætt að miða við það að hægt sé að koma við deigið án þess að það klístrist við mann

IMG_8482IMG_8480

IMG_8466IMG_8467

 

 

IMG_7264

 

IMG_8465

2299

Með sykurmola

IMG_8479

Viltu skilja eftir athugasemd?

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*