Tiramisu í miklu uppáhaldi
Uppruni
Þessi frábæri eftirrétur kemur frá mömmu og er hann í miklu uppáhaldi hjá mér. Mamma gerir alltaf til sinn eigin mascarponeost (sjá – Ýmislegt – Heimagerður mascarpone) en þá er betra að vera skipulagður þar sem sjálf ostagerðin tekur u.þ.b. 3 daga. Heimagerði osturinn er auðveldari og mýkri en sá sem er keyptur úti í búð.
Forvinna
Þennan eftirrétt er upplagt að búa til daginn áður.
Hráefni
- 6 egg
- 6 msk sykur
- Smá salt
- U.þ.b. 500 g mascarpone – látinn standa úti áður svo að hann sé við stofuhita. Upplagt að gera heimagerðan mascarpone
- 1½ dl rjómi
- 1 – 2 pakkar langevinger (ladyfingers) kex
- 1½ dl sterkt kaffi
- Rúmlega ½ dl Amaretto líkjör (má einnig nota Kahlua eða Grand Marnier)
- 150 g suðusúkkulaði – rifið
- U.þ.b. 1 msk kakó
Verklýsing
- Kaffi lagað og látið kólna
- Súkkulaði rifið gróft
- Hvítur stífþeyttar ásamt salti
- Rjómi þeyttur
- Eggjarauður hvítþeyttar með sykrinum
- Mjúkum ostinum hrært varlega saman við rjómann. (Athugið að íslenskur mascarponeostur verður helst að vera með dagsetningu a.m.k. mánuð fram í tímann – ef hann er of gamall á hann til að verða kekkjóttur)
- Ostablöndunni blandað saman við eggjarauðuhræruna (passa að hræra ekki of mikið) og eggjahvítum blandað varlega í síðast
- Kaffi og líkjör blandað saman, kexinu dýft í og raðað í botninn á glerskál
- Helmingnum af ostablöndunni hellt yfir kexið og síðan er 2/3 af súkkulaðinu dreift yfir
- Þá er öðru lagi af kexi (dýfðu í kaffi/líkjör) raðað ofan á og því sem eftir er af ostablöndunni hellt yfir
- Kakó sigtað yfir og 1/3 af súkkulaðinu dreift ofan á. Plast sett yfir og látið standa í kæli a.m.k. í nokkrar klukkustundir
Geymsla
Geymist ágætlega í kæli.




