Danskt vínarbrauð - kringle
Uppruni
Þessa uppskrift fékk hjá danskri nágrannakonu minni þegar ég bjó í Danmörku.
Hráefni
Deig
- 400 g hveiti
- 240 g smjör
- 50 g ger
- 2 msk sykur
- 2 dl mjólk
Fylling og skraut
- 120-150 g smjör
- 90-100 g sykur
- 100 g muldar makkarónukökur
- Möndlur og sykur
Verklýsing
Deig
- Smjör brætt í potti og mjólk bætt saman við – 37°C ( sjá: Til gamans – Gerbakstur – Góð ráð)
- Þurrger og sykur sett í skál, smjörblöndunni bætt við – blandað
- Hveiti bætt saman við – hnoðað
- Látið hefast í skál í u.þ.b. klukkutíma eða þar til deigið hefur tvöfaldað stærð sína
Fylling
- Smjör og sykur þeytt saman í skál
- Makkarónukökum bætt í skálina – hrært
Samsetning
- Deigið flatt út og fyllingin sett í miðjuna – lokað
- Búin til kringla eða tvær lengjur og látið í ofnskúffu með bökunarpappír
- Ofninn hitaður í 200°C
- Látið hefast á með ofninn hitnar og bakað í u.þ.b. 20 mínútur
- Skreytt með möndluflögum og sykri



