Auðveldur og góður sumarmatur
Uppruni
Á góðum sumardegi er gott að fá sér grillaðan silung. Skemmtilegast við þennan rétt er hvað hann er ótrúlega fljótlegur og góður. Mér finnst kalda sósan góð og ekki verra að hún er líka fljótleg og einföld.
Hráefni
- Silungsflök
- Fetaostur – best að nota bút af fetakubbi sem liggur ekki í olíu. Ath. það má alveg sleppa fetaostinum þar sem silungurinn er líka góður án hans
- Sítróna – skorin í báta
- Salt og pipar
Köld sósa
- Philadelphia rjómaostur með graslauk (ef til er graslaukur á heimilinu er um að gera að saxa hann og blanda honum saman við hreinan rjómaost)
- Sýrður rjómi
- Majónes
- Ef þú ert í extra góðu skapi er gott að setja ögn af sojasósu, nokkra dropa af tabascosósu, pipar og salt
Ath. hlutföllin eru svolítið frjálsleg… ég er með helming af sýrðum rjóma og rjómaosti en ½ af majónesi
Salat – hugmynd
- Salatblöð
- Agúrka
- Granatepli – ef til eru
- Möndluflögur – ristaðar
- Græn vínber – mér finnst þau passa sérstaklega vel með silungnum
- Skvetta af góðri olíu – ekki nauðsynlegt
Verklýsing
- Silungurinn lagður á fat sem þolir að fara á grillið – grillið hitað
- Sítrónubátur kreistur yfir silunginn og fetaostur mulinn yfir fiskinn. Salti og pipar stráð yfir – fatið sett á grillið og látið vera í 10 mínútur. Ath. þeir sem vilja hafa fiskinn léttsteiktan ættu að hafa hann í aðeins færri mínútur
- Sósa: Hráefnum hrært saman
- Salat blandað saman
Meðlæti: Kartöflur, hrísgrjón eða t.d. brokkolísalat.
Sósa í vinnslu