Ofnbakaður fiskur með mascarpone og sólþurrkuðum tómötum

 

 

Ofnbakaður fiskur með mascarpone og sólþurrkuðum tómötum

  • Servings: 4 - 5
  • Difficulty: auðvelt
  • Print

Uppruni

Þennan rétt fékk ég í Skagafirðinum – sérstaklega góður og ekki spillir fyrir hvað hann er einfaldur og fljótlegur.  Það er alltaf gaman þegar börnunum þykir fiskréttir góðir og þessi er einn af þeim.

Hráefni

  • 800 g þorskhnakki, langa eða annar fiskur
  • 2 – 3 hvítlauksrif – pressuð
  • 200 – 250 g niðursoðnir maukaðir tómatar
  • 200 – 250 g mascarponeostur
  • 1 – 1½ dl sólþurrkaðir tómatar í olíu – má gjarnan setja aðeins af olíunni með
  • Garlic pepper
  • Parmesanostur
  • Grænmeti eins og gulrætur eða vorlaukur. Gulrætur skornar í þunnar sneiðar og vorlaukur skorinn í tvennt – má sleppa
  • Saltflögur

Verklýsing

  1. Ofninn hitaður í 180°C
  2. Fiskurinn lagður í eldfast fat og sólþurrkuðum tómötum dreift yfir
  3. Mascarponeostur og tómatamauk sett í pott og hitað þar til allt hefur blandast vel saman – hvítlauk bætt við
  4. Gulrótum eða öðru grænmeti dreift yfir fiskinn
  5. Blöndunni hellt yfir fiskinn og rifnum parmesanosti stráð yfir
  6. Fatið sett í ofninn og rétturinn látinn bakast í 15 – 20 mínútur (fer eftir þykkt fiskbitana)
  7. Gott að dreifa grófu salti aðeins yfir áður en rétturinn er borinn  fram

Meðlæti: 

Kartöflur eða hrísgrjón, ferskt salat og nýbakað brauð.

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*