Kraumandi blómkál með swarmakryddsmjöri og fetasósu

Kraumandi blómkál - frábært meðlæti og gott bara eitt og sér

  • Servings: 4
  • Difficulty: meðal
  • Print

Uppruni

Ég fékk hugmynd að þessum rétti þegar ég var að fletta erlendu tímariti um daginn.  Þar sem ég á stundum erfitt með að fara nákvæmlega eftir uppskrift gerði ég mína eigin útgáfu af réttinum og er ég búin að elda hann nokkrum sinnum. Þá hef ég haft hann sem meðlæti með grillkjöti en ég efast ekki um að hann sé líka góður með ýmsum fiskréttum eða bara einn og sér.  Rétturinn bragðast glimrandi vel og þeir sem aðhyllast ketófæði ættu að veita honum athygli.

Ath.  Ef blómkálið er í minna lagi má alveg minnka fetasósuna – jafnvel gera bara hálfa uppskrift.

 

Forvinnsla

Hægt að útbúa swarmasmjörið og fetasósuna eitthvað áður. Einnig má sjóða blómkálið fyrr um daginn.

Hráefni

  • 1 stórt blómkálshöfuð
  • ½ – 1 tsk salt
  • Vatn – rúmlega botnfylli

 

Swarmasmjör

  • 50 g smjör – við stofuhita
  • 2 msk shawarmakrydd
  • 1 – 2 stk hvítlauksrif – söxuð smátt
  • ½ msk sítrónusafi
  • ½ dl olía

 

Fetasósa

  • 180 – 200 g fetaostur (nota fetakubb)
  • 1 stk grænn chilipipar eða ferskt jalapenos
  • 2 dl sýrður rjómi

 

Skraut

  • Steinselja – söxuð smátt
  • Seasamfræ
  • Saltflögur og pipar
  • Vorlaukur – skorinn í þunnar sneiðar
  • Ávextir eins og bláber eða granatepli – má sleppa

Verklýsing

Swarmasmjör

  1. Smjöri, hvítlauk og shawarmakryddi blandað saman í skál.  Ef smjörið er of hart bræði ég það aðeins svo að það blandist kryddinu betur
  2. Olíu blandað saman við ásamt sítrónusafa

 

Fetasósa

  1. Fetaostkubburinn settur í kalt vatn í 5 mínútur. Vatnið sigtað frá
  2. Sýrðum rjóma, fetaosti og chili/jalapeno blandað saman í öflugum blandara eða matvinnsluvél

 

Blómkál

  1. Blómkálið skolað og snyrt en ekki taka öll grænu blöðin af – gott að skera aðeins af stiklinum neðst
  2. Vatn sett í pott og saltað. Ath. ekki hafa of mikið vatn – bara þannig að blómkálið sjóði meira í  gufunni en í vatninu. Lokið sett á pottinn og vatnið hitað að suðu
  3. Blómkálshöfuðið sett í pottinn og suðan látin koma upp aftur. Hitinn lækkaður í meðalhita. Tekið úr pottinum eftir 7 – 10 mínútur eða þegar hægt er að stinga prjóni í gegn (má vera smá fyrirstaða). Ath. ekki ofsjóða blómkálið
  4. Blómkálið sett í sigti þannig að vatnið renni vel af því
  5. Kryddsmjörinu smurt á blómkálið. Ágætt að eiga örlítið eftir af því til að smyrja á kálið rétt eftir að það er komið úr ofninum
  6. Saltað og piprað
  7. Ofninn hitaður í 240°C (gott að stilla á grillstillingu). Blómkálið sett á ofnplötu eða í eldfast mót/pott og grillað í 5 – 7 mínútur. Fallegt að fá smá lit á það. Afgangi af shawarmasmjörinu smurt á í lokin

 

Samsetning

  1. Blómkálshöfuðið tekið úr ofninum og fetasósunni hellt yfir.  Vorlauk, steinselju og seasamfræjum dreift yfir

 

 

Fetasósa í vinnslu – henni hellt yfir blómkálið eftir að það hefur verið tekið úr ofinum

2 Comments

  1. Dalrós Halldórsdóttir

    Sæl Hanna,
    takk fyrir frábært blogg. Hvað er Swarmakrydd ? Ég elska bakað blómkál og því alltaf að leita að nýjum hugmyndum en ég finn þetta krydd ekki með hjálp google.
    kv. Dalrós

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*