Karrýfiskur í potti

Þorskhnakki í karrýsósu með hvítkáli og sveppum

  • Servings: 4 - 5
  • Difficulty: meðal
  • Print

 

Uppruni

Hér kemur mín útgáfa af fiskipönnu lágkolvetnagoðsins elduð í Hönnupotti… ótrúlega einfalt og gott.  Allir sáttir og karrýfólk heimilisins alltaf extra sátt.  Ef þú átt ekki Hönnupott er bara um að gera að nota ofnhelt ílát með loki – betra ef það er ekki alltof stórt.  Það skiptir máli að hafa lokið á í ofninum til að koma í veg fyrir uppgufun.

Hráefni

ATH. Magnið af hvítkáli og blómkáli er smekksatriðið – það getur vel komið í staðinn fyrir hrísgrjón eða kartöflur og því gott að hafa meira en minna.

  • 800 g þorskhnakki
  • 1 egg
  • 3 msk karrý frá Pottagöldrum
  • 400 – 500 g hvítkál – skorið í þunnar ræmur
  • 250 g sveppir – skornir í báta
  • ½ – 1 blómkálshöfuð – kurlað eða rifið með rifjárni
  • 1½ – 2 dl matreiðslurjómi/rjómi
  • 1½ – 2 dl rjómaostur

Verklýsing

  1. Egg pískað í skál ásamt helmingi af karrýinu (1½ msk)
  2. Ofninn stilltur á 180°C
  3. Olía sett á pönnu og hituð
  4. Fiskbitum velt upp úr karrýegginu og þeir settir á heita pönnuna – bitunum snúið við og látnir brúnast aðeins
  5. Fiskbitar teknir af pönnunni og settir í leirpott
  6. Pannan hituð aftur – aðeins af olíu sett á.  Hvítkál steikt í nokkrar mínútur og hellt yfir fiskinn
  7. Pannan hituð á ný og blómkálskurl steikt og sett yfir í pottinn
  8. Nú er pannan hituð aðeins meira og smá af olíu sett á – klípa af smjöri gefur gott bragð. Sveppir snöggsteiktir á pönnunni og settir í pottinn
  9. Hiti lækkaður og rjómi, rjómaostur og karrý sett á pönnuna – hrært í. Þegar blandan er orðin slétt og fín er henni hellt yfir fiskinn
  10. Potturinn settur í ofninn (með lokinu á – annars þornar fiskurinn) og eldað í 15 – 20 mínútur

 

Meðlæti: Borið fram með fersku salati

Hráefni

.


Hvítkál snöggsteikt

 

Ágætt að blanda því sem eftir er af eggjakarrýinu við blómkálskurlið áður en það er snöggsteikt

Sósa í vinnslu

Pottur tilbúinn í ofninn

 

 

 

 

 

 

 

 

2 Comments

  1. Kristín Jónsdóttir

    Karrýfiskur, vá ! Geggjaður matur. TAKK. Eldaði þorskinn í Hönnupotti. Frábær matur. TAKK fyrir okkur.🌹

Skildu eftir svar við Hanna Þóra Cancel

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*