Niðursoðnar rauðbeður

Niðursoðnar rauðbeður

  • Servings: u.þ.b. 5 krukkur
  • Difficulty: meðal
  • Print

Uppruni

Nauðsynlegur hluti af jólunum eru rauðrófur og heimagerða lifrarkæfan með uppáhaldsbrauðinu mínu, Brauðinu góða – Gottlandslimpa. Hér kemur uppskriftin að rauðbeðunum hennar mömmu.

Forvinna

Hægt að útbúa snemma í desember.

Hráefni

Rauðrófur

  • 1 kg rauðrófur/rauðbeður
  • Piparrót

Lögur:

  • 3 dl mataredik (Heidelberg)
  • 2 dl vatn
  • 1 dl sykur

Verklýsing

  1. Rauðrófur soðnar í u.þ.b. 1 klukkustund
  2. Hýðið nuddað af með höndum á meðan þær eru heitar (nota hanska)
  3. Rauðrófur skornar í sneiðar og þeim raðað í krukkur
  4. 3 – 4 litlir bitar af piparrót settir í hverja krukku
  5. Lögur útbúinn með því að sjóða saman mataredik, vatn og sykur þar til sykurinn er uppleystur
  6. Heitum leginum hellt yfir rauðrófurnar og lokið sett strax á. Látið kólna og svo sett í kæli
  7. Best að geyma í a.m.k. viku í kæli áður en þær eru bornar fram

 

Geymsla

Geymist mjög vel í kæli.

 

 

 

 

 

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*