Rifsberjahlaup – einfalt að búa til
Uppruni
Á hverju hausti hefur mamma búið til rifsberjahlaup. Nú er þetta orðið eitt af mínum haustverkum. Til að byrja með hélt ég að það væri mjög flókið en svo er alls ekki. Rifsberjahlaup er gott með ostum, kjötbollum, ofan á brauð, með pönnukökum, vöfflum og svona mætti lengi telja. Það er mikilvægt að láta bæði stilka og óþroskuð ber fylgja með rauðu berjunum – það hjálpar við að hlaupið hlaupi.
Hráefni
- 1 kg rifsber (stilkar og óþroskuð ber fylgja með)
- 1 kg sykur (ágætt að nota sultusykur/syltesukker)
- 1 msk vatn
Verklýsing
- Krukkur og lok hreinsuð – soðið í potti (suða látin koma upp – láta sjóða í 1 – 2 mínútur). Krukkurnar settar á hvolf ofan á grind
- Berin skoluð og sett í pott. Vatni bætt við. Sykur settur út í – blandað saman
- Rifsber og sykur hitað að suðu – hrært í öðru hvoru. Þegar suðan er komin upp er soðið áfram í 3 mínútur
- Maukinu er hellt í sigti eða sigti með grisju á milli og vökvinn látinn renna af í skál. Sigtið þarf að vera fíngert. Ef grisja er notuð verður hlaupið tærara og fer það eftir þéttleika hennar hvað mikið situr eftir
- Vökvanum hellt reglulega í krukkurnar – mikilvægt að gera það áður en hann kólnar og hleypur. Ágætt að nota tvær skálar og færa sigtið á milli svo að hægt sé að hella reglulega í krukkurnar. Það kemur stundum froða á yfirborðið sem gott er að taka með skeið áður en hellt er í krukkurnar – sjá mynd (froðan getur verið góð á ísinn)
- Þegar þessu er lokið er eldhúsrúllubréf lagt yfir krukkurnar og þær látnar kólna
- Lokin sett á þegar hlaupið er orðið kalt
Nota yfirleitt grisju til að sía hratið frá.
Stundum myndast froða sem gott er að taka með skeið áður en hellt er í krukkurnar.
Einnig er hægt að sía beint í gegnum sigti en þá verður hlaupið ekki eins tært.