Góð sósa með kjöti og fiski

 

Góð sósa með kjöti og fiski

  • Servings: fyrir 4-5
  • Difficulty: auðvelt
  • Print

Uppruni

Þessa uppskrift fann ég í sænsku blaði. Mikilvægt er að láta sósuna standa – þá verður hún bragðmeiri. Hún er góð með kjúklingi og grillkjöti en á líka vel við fisk.

Forvinna

Sósuna þarf að búa til daginn áður og láta hana standa yfir nótt í kæli.

Hráefni

  • 1 dós sýrður rjómi
  • 40 g klettasalat (rucola)
  • 25 g parmesanostur – rifinn fínt
  • 1 – 2 hvítlauksrif – pressuð
  • 1 msk olía
  • ½ msk sítrónusafi
  • Örlítið salt

Verklýsing

  1. Hluti af sýrða rjómanum og klettasalatið sett í skál með háum köntum. Hrært saman með töfrasprota
  2. Afgangi af sýrðum rjóma og öðru hráefni bætt við og blandað vel saman
  3. Geymt í kæli í sólarhring

Á vel við

Grillmat og fisk.

IMG_5365

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*