Sultaður rauðlaukur – góður á hamborgarann
Uppruni
Auðveld uppskrift sem er heimatilbúin. Sérstaklega gott að setja sultaðan rauðlauk og piparrótarsósu ofan á hamborgara.
Forvinna
Hægt að gera töluvert áður þar sem laukurinn geymist vel í kæli í lokuðu íláti.
Hráefni
- 2 rauðlaukar – afhýddir og skornir í þunnar sneiðar
- ½ dl balsamic
- 1 hvítlauksgeiri (pressaður eða saxaður fínt)
- 2 msk hunang
- 1 msk olía
- ½ – 1 msk sykur
- Nýmalaður pipar
Verklýsing
- Niðurskornar lauksneiðar settar í pott ásamt öðru hráhefni – hitað að suðu
- Látið sjóða á meðalhita í 35 – 45 mínútur eða þar til mest af vökvanum hefur gufað upp og blandan er orðin sultukennd. Muna að hræra í öðru hvoru þannig að ekki brenni við – sérstaklega í lokin
- Sett í hreina krukku með loki og geymt í kæli
Takk kærleg, dásameg uppskirft 🙂
Gaman að heyra 🙂