Grillpinnar með hnetusmjörsósu
Uppruni
Þessi uppskrift kemur frá mömmu og hefur hún alltaf notið mikilla vinsælda.
Forvinna
Ég kaupi oftast kindafile og set það í marineringu daginn áður. Ef ekki er nægur tími til stefnu má láta kjötið standa úti í marineringu í 4-6 klukkutíma. Sósuna má gera eitthvað áður.
Hráefni
Marinering
- ½ dl eplaedik
- 1 dl olía
- 2 hvítlauksrif – pressuð/söxuð
- U.þ.b. ¼ dl rifinn engifer
- 1 msk sojasósa
- 1 msk hunang
- Mulinn pipar
Grillpinnar
- U.þ.b. 1½ kg kjöt
- 1 rauð paprika
- 1 græn paprika
- 1½ – 2 laukar
- 200 g sveppir
- Tómatar
Hnetusmjörsósa
- U.þ.b 1 lítri af kjötsoði (vatn og kjötkraftur)
- 2 dl hnetusmjör – fínt eða gróft eftir smekk
- 2 msk sósujafnari
- ¼ tsk eplaedik
- U.þ.b. 1 tsk saltflögur
Verklýsing
Marinering
- Öllu hráefni blandað saman í skál
- Kjötið er skorið í hæfilega stóra bita (u.þ.b. 5 cm eða 50 g hver biti) – sett út í marineringuna
- Geymt í kæli yfir nótt eða látið standa úti í u.þ.b. 4 klukkutíma
Grillpinnar
- Laukur skorinn í báta og settur í skál með köldu vatni (það mildar bragðið og dregur út lyktinni). Papríka skorin í bita
- Öllu raðað á grillpinna – trépinna er gott að setja í bleyti aðeins áður. Yfirleitt eru settir þrír kjötbitar á hvern grillpinna (U.þ.b. 150 g kjöt á hvern pinna) ásamt grænmeti. Gott að raða þeim á ofnskúffu. Stundum eru gerðir aukapinnar með sveppum eða tómötum á
- Best að laga sósuna áður en kjötið er grillað
- Grillið hitað og pinnarnir grillaðir – hvorum megin í u.þ.b. 3 mínútur. Gott að strá saltflögum
Hnetusmjörsósa
- Vatn hitað að suðu í potti og kjötkrafti bætt út í
- Hnetusmjöri bætt við og því hrært saman við kjötsoðið
- Sósujafnari settur út í þegar hnetusmjörið hefur náð að blandast kjötsoðinu – hitað að suðu og hrært þar til sósan þykknar. Smekksatriði hversu þykk sósan á að vera – sósujafnara bætt við eftir þörfum
- Ediki og salti bætt við – smakkað til
Meðlæti
Borið fram með hrísgrjónum og fersku salati.
Prófaði grillpinnana í gær. Heppaðist mjög vel og var sérstaklega gott. Rann ljúflega niður í gestina. Ég á örugglega eftir að prófa meira frá ykkur.
Kær kveðja,
Anna
Gaman að heyra 🙂