Sítrónupavlova

Sítrónupavlova

  • Servings: 8 - 9
  • Difficulty: meðal
  • Print

Uppruni

Pavlova er í miklu uppáhaldi hjá mér – hér kemur ein útgáfa til viðbótar.  Upplagt að búa til sitt eigið sítrónusmjör en það er hægt að gera nokkrum dögum áður og geyma í kæli.

Forvinnsla

Það má alveg búa marengsinn til nokkrum dögum áður.  Sama með sítrónusmjörið en þá er bara eftir að þeyta rjómann og setja kökuna saman.

Hráefni

  • 4 eggjahvítur
  • 175 g sykur
  • 1 msk maísmjöl
  • 1 tsk hvítvínsedik
  • 2 – 3 dl Sítrónusmjör
  • 4 – 5 dl rjómi

Verklýsing

Marengsbotn

  1. Ofn hitaður í 150°C (yfir- og undirhiti)
  2. Eggjahvítur þeyttar hálfstífar
  3. Helmingnum af sykrinum bætt út í smátt og smátt og marengs þeyttur í stífa toppa
  4. Hinn helmingurinn af sykrinum hristur með maísmjölinu og hrært (með sleif) út í þar til blandan er slétt
  5. Ediki bætt í síðast
  6. Bakað í springformi (24 – 26 cm) með bökunarpappír á botninum og sett á grind í ofninn
  7. Eftir 10 mínútur er hitinn lækkaður í 120°C
  8. Bakað í 1 klst. og látið standa í ofninum yfir nótt

 

Samsetning

  1. Rjóminn þeyttur
  2. Marengsbotninn tekinn úr forminu og settur á kökudisk. Smjörkremið sett ofan á. Rjóminn kemur efst og síðan skreytt með berjum eða ávöxtum eftir árstíð

Sítrónusmjör 

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*