Marineruð úrbeinuð kjúklingalæri
Uppruni
Þessi réttur er alveg sérstaklega góður. Hann er í miklu uppáhaldi hér á bæ og er sérstaklega gott að bjóða upp á muhammara kryddsósu og sítrónusósu með. Mér finnst best að nota úrbeinuð kjúklingalæri og marinera þau en einnig er hægt að nota kjúklingalæri með beini.
Hráefni
- U.þ.b. 700 g úrbeinuð kjúklingalæri eða 6 kjúklingalæri
- 1 tsk paprikuduft
- 1 tsk cumin
- ½ tsk kanill
- ¼ tsk kardimomma
- ½ g saffran (1/8 tsk)
- ½ dl hrein jógúrt
- 1½ – 2 msk hunang
- 1½ tsk salt
- 1 tsk nýmalaður pipar
Verklýsing
- Öllu hráefni blandað saman og kjúklingalærin sett í blönduna. Hægt að láta kjötið marinerast í skál eða plastpoka að minnsta kosti í 4 klukkustundir eða í kæli yfir nótt
- Kjúklingalærin grilluð eða steikt þar til þau eru steikt í gegn (ef ég nota ofninn stilli ég hann á 180°C og hef kjúklingalærin þar inni í 15 – 20 mínútur – sný þeim við 1 – 2 sinnum. Mér finnst ágætt að að stilla svo á grill í lokin til að fá fallegan lit á kjúklinginn)
Meðlæti
Sítrónujógúrt, muhammara kryddsósa, salat og hrísgrjón eða kúskús. Einnig gott að bjóða upp á harissa kryddmauk (fæst í Istanbúl í Ármúla).