Einfaldir margengstoppar – gott að eiga
Uppruni
Þessi uppskrift er frá mömmu. Hún hefur oft búið til marengstoppa þegar hún hefur átt afgangs eggjahvítur í kæli. Hún notar þá sem skraut á eftirrétti eða með ís og súkkulaðisósu. Topparnir eru mjög vinsælir hér á bæ en ég hef oft búið þá til og haft t.d. ofan á Mojito-ostaköku í glasi.
Hráefni
- 4 eggjahvítur
- 120 – 140 g sykur
Verklýsing
- Ofninn hitaður í 100°C (blástur)
- Eggjahvítur þeyttar þannig að freyði vel, sykrinum bætt út í – litlu í einu. Þeytt þar til hræran myndar stífa toppa
- Blandan sett í einnota/margnota sprautu. Toppar sprautaðir á bökunarpappír – sjá mynd fyrir neðan.
- Bakað í 1 klukkustund – má hafa allar plöturnar í ofninum í einu ef stillt er á blástur. Látið kólna í ofninum
Geymsla
Kökurnar geymast vel í lokuðu boxi.