Hindberjakúlur með kókos
Uppruni
Þessi uppskrift er heimatilbúin. Ég nota frosin hindber (uppskeruna úr garðinum) en það er líka upplagt að kaupa frosin hindber.
Hráefni
- 50 g hvítt súkkulaði
- U.þ.b. 10 hindber
- Kókosmjöl
Verklýsing
- Hvítt súkkulaði brætt í skál yfir heitu vatnsbaði (skálin sett á pott með heitu vatni – ekki láta vatnið sjóða of mikið)
- Frosnum hinberjum dýft einu í senn ofan í súkkulaðið og síðan rúllað upp úr kókosmjöli
- Látið kólna í kæli