Rúlluterta með kókos og sítrónusmjöri (sítrónucurd)

Rúlluterta með kókos og sítrónusmjöri (sítrónucurd)

  • Servings: /Magn: 6 - 8 bitar
  • Difficulty: meðal
  • Print

Uppruni

Ég held mikið upp á rúllutertur enda eru þær ýmsum kostum búnar.  Það er sérstaklega fljótlegt að baka þær, möguleikarnir eru margir og þær eru fallegar á borði. Hér kemur ein útgáfa af auðveldri rúllutertu. Það má aðeins leika sér með hana eins og að dreifa ferskum berjum yfir fyllinguna eða bera berjasósu fram með henni.

Forvinna

Tilvalið að búa sítrónusmjörið til daginn áður eða nokkrum dögum áður – það geymist vel í kæli.  Það má alveg baka botninn daginn áður en þá er best að kæla hann alveg (láta ofnskúffuna liggja yfir í góðan tíma) og setja hann síðan í stóran plastpoka (láta bökunarpappírinn fylgja með).  Best er að setja fyllinguna á og rúlla kökunni upp sama dag og boðið er upp á hana.

Hráefni

Botn

  • 3 egg
  • 1½ dl sykur
  • 6 msk kartöflumjöl
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 tsk vanillusykur

Fylling

Skraut – ýmsir möguleikar

  • Kókosmjöl
  • Þeyttur rjómi
  • Sítrónusmjör
  • 2 dl frosin bláber eða önnur ber (hituð í potti með ½ dl af vatni og 2 tsk af hunangi)

Verklýsing

Botn

  1. Ofninn hitaður í 250°C (yfir- og undirhiti)
  2. Egg og sykur hvítþeytt
  3. Kartöflumjöli, lyftidufti og vanillusykri blandað saman og sigtað út í hvítþeytt eggin – betra að sigta hluta í einu og blanda varlega saman
  4. Bökunarpappír settur í ofnskúffu – gott að smyrja pappírinn aðeins með hörðu smjöri
  5. Deiginu dreift yfir pappírinn og bakað í 5 mínútur – fylgjast með svo að kakan verði ekki of dökk
  6. Kökunni hvolft á annan bökunarpappír sem búið er að dreifa kókosmjöli á – hinn tekinn af og ofnskúffa lögð yfir – það er gert til þess að koma í veg fyrir að kakan harðni

 

Fylling og samsetning

  1. Rjóminn þeyttur – vanillusykri blandað saman við
  2. Ofnskúffan tekin af kökunni og sítrónusmjöri smurt yfir
  3. Rjóma dreift yfir og kakan rúlluð upp – gott að nota bökunarpappírinn til að hjálpa við að rúlla henni upp
  4. Rúllutertuna er hægt að bera fram heila á fallegu bretti/fati en einnig má skera hana í bita.  Þá er fallegt að hver biti sé u.þ.b. 5 – 6 cm þykkur (láta skurðarenda snúa upp) og skreyta með rjóma, sítrónusmjöri og kókosmjöli. Einnig má bera fram berjasósu og hella henni yfir

Geymsla: Rúllutertuna er best að geyma í kæli – hún er líka góð daginn eftir.

 

 

 

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

*